checkAd

     101  0 Kommentare Reykjavíkurborg - Fjármögnun til 2-5 ára

    Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 18. febrúar 2021 að heimila fjármála- og áhættustýringarsviði að leita tilboða í lántöku til skemmri tíma, þ.e. til 2-5 ára. Lántakan yrði í formi útgáfu skuldabréfaflokks og/eða lántöku hjá fjármálastofnun að fjárhæð allt að 5 milljarðar króna. Lántakan yrði hluti af fyrirhugaðri lántöku á árinu 2021, sem eru 34,4 milljarðar króna skv. fjárhagsáætlun ársins. Tilgangur lántökunnar yrði að mæta þeim hluta fjárþarfar borgarinnar sem kemur til á næstu árum og rekja má til halla á rekstri vegna aðstæðna í efnahagslífinu.

    Nánari upplýsingar gefur:
    Halldóra Káradóttir
    Sviðsstjóri Fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar
    Sími: 411-1111
    Netfang: halldora.karadottir@reykjavik.is






    globenewswire
    0 Follower
    Autor folgen
    Verfasst von globenewswire
    Reykjavíkurborg - Fjármögnun til 2-5 ára Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 18. febrúar 2021 að heimila fjármála- og áhættustýringarsviði að leita tilboða í lántöku til skemmri tíma, þ.e. til 2-5 ára. Lántakan yrði í formi útgáfu skuldabréfaflokks og/eða lántöku hjá fjármálastofnun að …