Nova Klúbburinn hf.

    357 Aufrufe 357 0 Kommentare 0 Kommentare

    Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 37

    Í 37. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.686.000 eigin hluti að kaupverði 9.899.320 kr. í samræmi við eftirfarandi:

    Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
    09/09/2024 15:10:04 588.000 3.70 2.175.600
    10/09/2024 09:33:42 467.000 3.69 1.723.230
    10/09/2024 11:56:50 458.000 3.68 1.685.440
    11/09/2024 11:35:34 507.000 3.69 1.870.830
    13/09/2024 12:52:04 666.000 3.67 2.444.220
    Samtals 2.686.000   9.899.320

    Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.

    Nova Klúbburinn átti 51.782.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 54.468.000 hluti, eða um 1,48% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 208.205.600 kr.

    Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

    Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is






    globenewswire
    0 Follower
    Autor folgen
    Verfasst von globenewswire
    Nova Klúbburinn hf. Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 37 Í 37. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.686.000 eigin hluti að kaupverði 9.899.320 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð …