checkAd

     125  0 Kommentare Lækkun hlutafjár í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.

    Skráð hefur verið í Fyrirtækjaskrá hlutafjárlækkun í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. að nafnverði kr. 21.803.205, en á aðalfundi félagsins þann 7. mars sl. var samþykkt eftirfarandi tillaga stjórnar um að lækka hlutafé félagsins:

    „Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. haldinn 7. mars 2024 samþykkir að hlutafé félagsins verði, lækkað um kr. 21.803.205 að nafnverði til jöfnunar eigin hluta á grundvelli ákvæða laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Hlutafé félagsins lækkar þar með úr kr. 1.178.393.205 að nafnverði í kr. 1.156.590.000 að nafnverði.“ 

    Óskað hefur verið eftir því við Nasdaq verðbréfamiðstöð um að lækka skráð hlutafé til samræmis, fyrsti viðskiptadagur eftir lækkunina mun vera 2. apríl 2024. Fyrir hlutafjárlækkunina á Sjóvá 21.803.205 eigin hluti eða sem nemur 1,85% af útgefnum hlutum í félaginu. Eftir hlutafjárlækkunina á Sjóvá enga eigin hluti.

    Niðurfærslan hefur ekki áhrif á hlutafé í eigu annarra hluthafa en félagsins sjálfs.

    Nánari upplýsingar veitir:

    Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is





    globenewswire
    0 Follower
    Autor folgen

    Verfasst von globenewswire
    Lækkun hlutafjár í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Skráð hefur verið í Fyrirtækjaskrá hlutafjárlækkun í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. að nafnverði kr. 21.803.205, en á aðalfundi félagsins þann 7. mars sl. var samþykkt eftirfarandi tillaga stjórnar um að lækka hlutafé félagsins: „Aðalfundur …